Bloggfærslur mánaðarins, júní 2012
23.6.2012 | 20:19
Þóruhelgi og listfræði framboðsins
Nú er er mikið Þóru-branding í gangi. Þórupylsur sá ég auglýstar. Er það ein með allri Samfylkingunni?
Fyrir skömmu sá ég þessa ljósmynd á vef Politikens í Danmörku. Mér fannst ég hafa séð hana áður, en vissi þó ekki hvar. Í gær benti sjónminnugur maður mér hins vegar á, hvaðan kompósisjónin er komin eða ættuð, þótt ekki sé útilokað að um tilviljun sé að ræða (sjá neðst).
Hið frjósama Kreppu-Ísland getur óneitanlega oft líkst innstu óskum Þriðja ríkisins um frjósemi æðsta kynstofnsins. Þetta er ekta bænda- og verkamannarómantík sem kommar dýrkuðu líka. Hún er greinilega enn nokkuð rík í Íslendingum.
Eru annars SS-pylsur í Þóru-pylsum? Maður spyr bara. Ólafspylsur eru víst enn bæjarins bestu enda með hráum lauk.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.6.2012 | 06:46
Prófessor í ánægjukasti á Eyjubloggi
Nýjustu kannanir mínar sýna, að Stefán Ólafsson prófessor er lýðskrumari. Stefán er orðinn bloggari á Eyjunni og byrjar vel". Hann gerir ánægjumælingu ESB (Eurobarometer) að sínu fyrsta umtalsefni, og menn éta það hrátt eftir prófessornum.
Stefán er greinilega líka frístundaveðurfræðingur, og segir að góða veðrið hafi ekki haft áhrif á niðurstöðurnar", því rannsóknin hafi verið gerð í dumbungi nóvembermánaðar. En er það ekki einmitt þá sem Íslendingar stunda kynlíf að mestu kappi? Konur voru heldur ekki eins ánægðar og karlar í könnun Eurobarometers.
Geta prófessorar hjá HÍ ekki lengur heimilda? Stefán Ólafsson er ekki að hafa fyrir því á bloggi sínu. Þessi fyrst bloggfærsla Stefáns á Eyjunni er ein versta demógógía (skýring fyrir ánægða og vitlausa alþýðuna: lýðskrum) sem ég hef séð nýlega hjá fræðimanni. Þótt lærður maður á framfærslu Evrustjórnarinnar byrji að blogga fyrir alþýðuna, þýðir það ekki að alþýðan sé vitlaus þótt hún sé yfir sig ánægð í nóvember 2011. Engir borða meira af lukkupillum og einmitt Danir og Íslendingar, sem eru í efstu sætunum í ánægjukönnum Eurobarometer.
Hér er grein sem Stefán Ólafsson hefði kannski átt að kynnt sér: áður en hann setti þessa Pollýönnufrétt sína á Samfylkingarbloggið.
Svo mætti prófessorinn minnast á, hver lætur framkvæma þessa vitleysu. Það er ESB.
Fyrst prófessorinn er svo slakur í aðferðafræði, þá verð ég líka að minnast á að menn leggja misjafnt mat á orð eins og ánægja í hinum mismunandi löndum.
Einnig verður að minna lukkupilluprófessorinn í HÍ á, að Íslendingar eru ekki með í ESB og þess vegna eru þeir kannski glaðir og ánægðir. Danir eru í ESB en ekki með evru, þess vegna eru þeir lykkelige, en þeir eru líka ímyndunarveikasta þjóðin í Evrópu. Þeir halda enn að þeir hafi einir unnið Síðari heimsstyrjöld og hafi gert heimsfriðinum gagn með því að liggja undir Þjóðverjum og selja þeim landbúnaðarafurðir á spottprís. Þær afurðir fæddu morðsveitir nasista í Austur-Evrópu. Búr dauðans var í Danmörku - en Danir vilja helst ekki heyra það og eru ánægðir með það. Sjá hér.
Mér sýnist að Stefán Ólafsson sé að falast eftir því að honum verði greidd prófessorshýran í evrum og að hann sé álýka bjartsýnn og ánægður með lífið og hirðfífl ríkisstjórnarinnar sem nú stappar stálinu í daufar Evruþjóðir. Össur getur notað Stefán sem geltandi kjölturakka á Eyjunni fram að næstu kosningum, svo heilaþvegnir samfylkingarmenn hafi eitthvað uppbyggilegt að lesa, meðan Össur fer í gegnum síðustu kaflana á ESB leiðbeiningabókinni.
Ánægjurannsókn ESB er einfaldlega góður mælikvarði á óáreiðanleika ESB.
22.6.2012 | 08:27
Lýst eftir lygnum blaðasnápi á Vísi
Eins og fram hefur komið í fréttum, lét dr. Herdís Þorgeirdóttir forsetaframbjóðandi hafa eftir sér afar ljótar og ósæmandi skoðanir sumarið 1977. Hún hefur nú reynt að þvo hendur sínar af þessum ósóma með því að segjast hafa vitnað í George Wallace, sem og að orð hennar hafi verið tekin úr samhengi af blaðamanni Vísis. Wallace var þó aldrei eins grófyrtur um blökkumenn og Herdís, sem var reynda sjálf blaðakona á Mogganum sumarið 1977. Hún var spurð hvað hún myndi gera ef til landsins kæmu 10.000 negrar. Herdís var sko með Lokalausn í lagi: Senda þá á lekum bát út í hafsauga.
Ég furðaði mig á því í gær, að enginn hefði hnotið um orð Herdísar árið 1977, og reyndi að skýra það um leið og ég leitaði svara. Stuðningsmenn Herdísar hafa nú upplýst að grein hefði verið í Þjóðviljanum um ummæli Herdísar. En þetta er nú allt og sumt.
Eftir stendur að Herdís telur sig fórnarlamb skítseiðis úr sömu stétt og hún tilheyrði sumarið 1977. Manns sem sneri út úr merkum orðum hennar, þar sem hún var með heimspekilegar vangaveltur um George Wallace, sem hún mun hafa verið sérfræðingur í. En eins og menn muna, var sjaldan hægt að birta nema 10 orði í Svari Dagsins, svo blaðamanninum hefur verið vandi á höndum. Herdís segir hann ekki hafa stigið í vitið og lagt orð Wallace ríkisstjóra henni í munn. Þetta er auðvitað ljótt ef satt er. Og það sanna verður að koma í ljós.
Með svona mál í farteskinu munu erlendir blaðamenn sleikja út um ef Herdís næði kjöri. Illkvittnislegt heiti eins og Harðbrjósta Herdís mun hugsanlega loða við hana. Og hvað ætli Feneyjarnefnd Evrópuráðsins um Mannréttindi segði um orð Herdísar, en hún er einmitt formaður undirnefndar í Feneyjarnefndinni og líka sérfræðingur í frelsi fjölmiðla.
Ef þú ert einhvers staðar þarna úti, blaðasnápur á Vísið sumarið 1977, sem lagðir snöru um fót Herdísar, þá gefðu þig fram og segðu okkur þína hlið á málinu. Ef Herdís er hins vegar að bera upp á menn ósannindi til að bjarga sér fyrir horn, er augljóst að hún verður að stöðva framboð sitt og segja sig úr undirnefnd Feneyjarnefndarinnar um mannréttindi. Kona sem vill senda 10.000 negra á lekum bát út í hafsauga, verður ekki forseti.
Hér, hér hér og hér má lesa brot úr sögu svarta mannsins á Íslandi sem ég hefi skrifað. Ég missti þó af því svæsnasta úr fordómunum, þ.e.a.s. orðum Herdísar Þorgeirsdóttur, sem voru ef til vill tekin úr samhengi, þar til annað sannast.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.6.2012 | 15:34
Er Ekvador draumaland nauðgarans?
Aumingja karlrassinn hann Julianus, sem um skeið dvaldi í Mosfellsbæ og duflaði við marga í hópi íslenskra blaðamanna. Drengurinn sá þarf nú að flýja allt suður til Miðbaugs, til Ekvadors, þar sem hið fornkveðna er enn við lýði: Sus enemigos son mis enemigos. Miss Enemiga býr auðvitað í Svíþjóð, sem er, eins og kunnugt er, mjög svo aftarlega á merinni, réttarfarslega og í mannréttindamálum. Svíar eru heimsþekktir fyrir spillingu og sem skósveinar vondu mannanna í BNA. Allt öðruvísi en Ekvador, sem er sósíalístísk velferðarparadís eins og Ísland.
Réttast hefði verið fyrir fósturmóður eins af blaðasnápunum sem héngu í skottinu á Assanganum um tíma, að bjóða honum í sælureitinn, eins og öðrum heimsmeistara í móðursýki, rugli og vitleysu. Fósturmóðirin, Jóhanna Sigurðardóttir, er hvort eð er alltaf tilbúin í að brjóta lög og ganga á bak orða sinna. Assange getur svo bara fengið vegabréfið hans Bobby Fischers. Hann þarf hvort eð er ekki að nota það frekar en heimsmeistarinn. Báðir eru ofsóttir af vondum mönnum, og Obama líka, og komast hvergi.
Íslenskir femínistar yrðu vafalaust stórfegnir ef Assange yrði boðið til Ísalands. Þá fengju þeir nú líkast til nóg að gera. Bara senda Assangann á Þjóðhátíð í Eyjum, og þá eru komin tíu ný mál.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.6.2012 kl. 05:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.6.2012 | 07:18
Harðbrjósta Herdís
Ég hef lítið á móti Herdísi Þorgeirsdóttur forsetaframbjóðanda, en finnst fjandi óþægilegt þetta svar hennar í Vísi árið 1977, sem nú er dregið upp úr pokahorninu í forsetaslagnum.
Flestir hljóta þó að hafa verið sammála harðbrjósta Herdísi, því engir fáruðust í Vísi út af stúlkunni með köldu tilfinningarnar í garð svartra á þeim tíma. En að senda fólk í burtu á "lekum bát" er nú harla kaldrifjað miðað við það sem hinir sögðu, sem spurðir voru af Vísi svöruðu sumardaginn 27. júlí 1977.
En árið 1977 voru vinstri menn og siðapostular á síðustu dögum heilögum nefnilega ekki búnir að finna upp rétthugsun sína. Þó var ég nærri búinn að því í landsprófi í Ármúlaskóla, þar sem við höfðum ágætan sögukennara að Norðan, sem nú er látinn. Mig langaði oft að kæra hann, þar sem hann kom oft með ærið rasískar túlkanir á sögunni sérstaklega í garð blökkumanna. Hann hafði stundað nám vestur í Bandaríkjunum, n.t. í Arkansas, og hafði kannski smitast af því umhverfi sem hann var í. En eftir á að hyggja, held ég að hann hafi aðeins verið að reyna að ögra með yfirlýsingum sínum til að sjá siðferðislega greind nemanda sinna.
Herdís sagði kannski árið 1977 það sem aðrir hugsuðu í almennri xenófóbíu íslensku þjóðarinnar. Börn útlendinga á þeim tíma og fyrr könnuðust vel við þá fóbíu. Íslendingar voru nefnilega bölvaðir sveitamann og -durgar í garð útlends fólks, þar til fyrir skömmu. Og margir þeirra, sem töldu sig helstu heimsmenn þjóðarinnar, voru oft hin verstu þorpsfífl og ratar inn við hjartað, hræddir um að missa hana Siggu sína eða hann Jón í hendurnar á Kana eða, hugsaður þér, stórum negrabassa með VOÐA stór....
Íslendingar fáruðust líka yfir gyðingum, Víetnömum, Ungverjum og öðrum flóttamönnum. Herdís er bara venjulegur Íslendingur. What can I say?
Eins gott að Óli heitinn Tynes fékk aldrei þá flugu að bjóða sig fram til forsetaembættis. Þá hefði þetta, nú örugglega verið dregið upp úr hattinum til að sýna arabahatur hans, en hann var með þessa frétt í sama Vísi og Herdís sendi negrana í lekum bát út í hafsauga. Það mun hún örugglega ekki gera ef hún verður Madame la presidente, þar sem hún blandar sér ekki í slík mál. En ekki örvænta góðu Íslendingar, þið sem viljið leggjast í eina sæng með fátækum Evrumanni. Í ESB er til fullt af lekum bátum. Negrar sem kunna eitthvað í fótbolta eða körfu eru þó alltaf velkomnir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
19.6.2012 | 06:49
Stuðningur við Palestínu
Þýskir nýnasistar unnu með Palestínumönnum að hryðjuverkunum í München árið 1972.
Löng hefð er fyrir tengslum Palestínumanna við nasisma Þýskalands. Stórmúftinn í Jerúsalem hafði vægast sagt náin tengsl við Hitler, Himmler og 3. ríkið. Í dag má finna arabíska þýðingu á Mein Kampf eftir Hitler í öllum nágrannaríkjum Ísraels og fjölmiðlar í Miðausturlöndum nota sömu skopteikningarnar" og andgyðinglegu minnin og nasistar og Pravda í Moskvu notuðu. Danskir nýnasistar og helfararafneitarar lýstu því yfir fyrir nokkrum árum, að þeir hefðu leitað til hópa ungra róttækra Múslíma í Danmörku. Þeir sem hata gyðinga og Ísrael eru einfaldlega vinir málstaðar Palestínumanna, og vinstriöfgamenn um allan heim eru þar á meðal.
Nú er komið í ljós að þýskur nýnasisti, Willi Pohl að nafni, mun hafa aðstoðað við undirbúning hryðjuverkaárásarinnar á ísraelska ólympíufarana í München árið 1972. Pohl hafði náin tengsl við heilann á bak við hryðjuverkaárásina sem var beint gegn ísraelska hópnum fyrir 40 árum. Fyrir frelsi Palestínu voru 11 íþróttamenn myrtir á hrottalegan hátt á leikunum.
Gögn BfV, Leyniþjónustu Þýskalands, sýna að Pohl hafði árið 1972 samband við Saad nokkurn Walli, sem var falskt nafn PLO hryðjuverkaleiðtogans Abu Daoud Oudeh, eins af skipuleggjendum árásarinnar í München sumarið 1972. Abou Daoud var einn af stofnendum Fatah, sem nú stjórnar nýstofnuðu öfgaríki sem hinn íslenski hryðjuverkastuðningsmaður Össur Skarphéðinsson og aðrir íslenskir kjánar hafa viðurkennt í vinstrisinnuðu gyðingahatri sínu.
Haustið 1972 var Pohl handtekinn og dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa í fórum sínum sprengjuvörpur, ólögleg vopn og skotfæri. Óskýrt er af hverju honum var sleppt nokkrum mánuðum síðar og hann hélt til Beirut þar sem hann hélt sig um tíma. Dómur sá sem hann fékk sem hægriöfgamaður er hlægilegur sé hugsað til þeirra dóma sem vinstriöfgamenn fengu. Pohl mun, samkvæmt heimildum Spiegel hafa útvegað Abu Daoud fölsuð skilríki og verið bílstjóri hans um þvert og endilangt Þýskaland.
Í dag heitir Willi Pohl, Willi Voss og skrifar vinsæla krimma sem seljast eins vel og Arnaldur Indriðason í Þýskalandi. Willi Voss Pohl er víst næst því að vera vinstrisinnaður í dag. Þegar árið 1991 upplýsti annar nýnasisti, Harry Sinowczik, um tengsl nýnasista við hryðjuverkaárásina í München.
Abu Daoud, vinur Willi Pohl Voss, lauk sinni aumu morðingjavist á jörðinni árið 2010 í Damaskus, bakgarði þjóðarmorðingjans Assads. Áður en Daoud geispaði golunni, lét hann hafa eftir sér að hann væri orðinn of veikburða til að berjast gegn Ísrael, en að barnabörn hans myndu berjast og einnig barnabörn barnabarnanna". Palestínumenn elska greinilega alltaf börnin sín jafnmikið.
Ísraelar og fjölskyldur fórnarlamba hryðjuverkanna í München hafa í 40 ár reynt að fá alþjóðlegu Ólympíunefndina til að minnast fórnarlamba hryðjuverkaárásarinnar á Ólympíuleikunum 1972 með þögn á leikunum, en því hefur verið hafnað vegna hræðslu við Arabaheiminn. Það er nú ljóst að fórnarlamba blóðugrar frelsisbaráttu" Palestínumann verður heldur ekki minnst við sérstaka athöfn í sumar. Ísraelsmenn gera það einir.
Myndin efst er af dönskum öfgamönnum fyrir framan félagsheimili gyðinga í Kaupmannahöfn árið 1979. Danskir gyðingar, sem vart þora að hafa skoðun á málefnum Ísrael, voru dregnir til ábyrgðar fyrir erjur í Miðausturlöndum. Boðskapurinn var greinilegur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.6.2012 | 11:58
Fjallkona í boði ríkisstjórnarinnar
Pétur Gunnarsson brá sér í fjallkonudrag á 17. júní 2012 til að gefa skít í gangrýnisraddir. Mótmæli og þreyta á landsöluríkisstjórninni er nú kallað þras.
Vonum við þrasarar, að þetta verði eitt af síðustu "skemmtiatriðum" núverandi ríkisstjórnar og aðrir rithöfundar vinni eins vel fyrir ríkisstyrknum og Pétur Gunnarsson gerir.
17.6.2012 | 19:32
Socialism, hypnotism
Einn smásmugulegasti Smugupenninn virtist heldur betur taugaveiklaður er ég kom í heimsókn á bloggið hans og spurði hann sex einfaldra spurninga um stríð og frið og fréttir af Vesturvígstöðvunum.
Innlegg Stefáns Pálssonar í forsetaframboðsumræðuna er ekki af lakara taginu. Sem argur stuðningsmaður Samfylkingarþóru vildi þessi blómlegi friðarsinni með færslu sinni á smáSmugubloggi sínu að setja Ólaf Ragnar Grímsson forseta á sakamannabekk með verstu stríðsglæpamönnum" Íslands.
Ykkar einlægur setti því snemma að morgni 17. júní athugasemd á opna umræðu hjá Stefáni Pálssyni friðarsinna og herstöðvarandstæðingi. Opin var umræðan ekki fyrir alla og Stebbi gerði sér lítið fyrir og útrýmdi mér og spurningum mínum, sem hann getur náttúrulega ekki svarað, þar sem ég er stuðningsmaður Dorritar og Ólafs og vel æfður í að sjá í gegnum líðskrum friðsams "fiðurfjár". Stefán sýndi þarna gamla takta úr fósturlöndum hugmundafræði sinnar. Ritskoðun er eitt sterkasta vopn friðarins í tæpum heimi manna eins og Stefáns Pálssonar.
Stefán Pálsson er því miður bara vesæll dindill á morðapparati sem sumir hafa kallar hugsjón og Stebbi "friðarsinni" veit það ósköp vel. Friðarsinni er hann ekki meiri en Pétur og Páll og blóð drýpur af sérhverju því máli sem hann styður í einfeldni sinni. Þess vegna þessi ritskoðun og eyðing, þegar hann fær erfiðar spurningar og heimur hans hrynur í spað. Stebbi getur hvorki svarað né gert af því að hann er svo tæpur, eins og friðurinn sem hann boðar. Friður Stebba kostar nefnilega fleiri líf en hann bjargar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
12.6.2012 | 19:05
Smekkleysan í Úkraínu
og enn tekur RÚV virkan þátt í lygaherferðinni, eins og í gær þegar snillingar á fréttastofu RÚV báru okkur fréttir af landsliðsþjálfara Úkraínu í fótbolta. Hann segir að ekki sé neitt kynþáttahatur í Úkraínu. Sjá hér. Myndin efst er tekin í Úkraínu árið 2007 og ekkert hefur breyst.
Það rétta er að mannréttindi eru fótum troðin í Úkraínu. Landið er heltekið af spillingu og eitraðir stjórnmálamenn og hóruhúsaparadís er það sem Úkraína er mest þekkt fyrir þessa dagana. Þeir sem þroskast hafa meira til fótanna en höfuðsins og eru nú að horfa á Evrópukeppni í fótbolta hafa greinilega minnstar áhyggjur af því. Úkraínski vændisherinn, sem mun vera álíka sterkur og sá Rauði forðum daga, situr hins vegar örugglega fyrir öllum atvinnuleysingjunum frá Evrópu sem flykkst hafa til flatneskjunnar í austri og mun sjúga síðustu evrurnar úr pungi karlskaufa sem svala fótboltaþorsta sínum í Úkraínu.
Í borginni Lviv (sem einnig hefur kallast Lemberg), hefur í nokkur ár verið rekinn veitingastaður sem ber nafnið Hjá Gyllta Rósinni". Gyllta Rósin var nafn á frægu samkunduhúsi gyðinga í Lviv sem var rústað í Síðara stríði. Í dag er boðið upp á gyðinglega menningu" í þessu veitingahúsi, þar sem menn eiga að prútta um verðið og haga sér eins og gyðingar. Gestirnir geta fengið hatta með áföstum peyot, (bænakrullum heittrúaðra gyðinga), til að komast í rétta fílinginn. Fyrst tóku Úkraínumenn virkan þátt í fjöldamorðum á gyðingum en í dag þéna og dansa þeir á minningu fórnarlambanna. Og svo eru þeir greinilegar hreyknir af smekkleysu sinni. Sjá hér
Til að halda upp á Evrópumeistaramótið tóku einhver illmenni þessa auma lands sig til um daginn og eyðulögðu minnismerki um 17.500 gyðinga sem myrtir voru í borginni Rivne. Stuðningsmenn knattspyrnuliðsins Karpaty Lviv eru væntanlega slegnir minnisleysi nú . En fyrir nokkrum árum veifuðu þeir nasistafána. Landsliðsþjálfari Úkraínu man greinilega ekki að hann tjáði sig á rasískan hátt um þeldökka leikmenn. Ekki eru nema sex ár síðan að hann lét hafa eftir sér þennan ósóma:
Menning og listir | Breytt 14.6.2012 kl. 16:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
11.6.2012 | 05:40
Getraunir Fornleifs
Nú er fimmta getraun Fornleifs í gangi. Takið þátt. Hvað er þetta?
Þrátt fyrir hjálp Pressu og Eyju er enn er ekki fundin in konan glaða sem kom í Þjórsárdal sumarið 1939 og lagði sig með fornum beinum. Þekkir einhver þessa konu? Sumum hefur hefur þótt það óhæfa hjá mér að birta þessa mynd, og fóru þá að velta út úr skápnum menn með létt hdl einkenni og bein löngu liðinna nasista, enda notuðu þeir í SérSveitunum Hjalta litla beinamyndir á kaskeit sín. Sjá frekar hér?
Bækur
Kynning á nokkrum færslum, greinum og bókum PostDocs
-
Nýtt blogg um fornleifafræði
FORNLEIFUR -
Þrælasalar í Norðurhöfum
Grein í Lesbók Mbl. 1999 -
: Ritaskrá 1972-2013 -
Fyrri færsla
Jakki Kiljans Laxness -
Bein Páls Biskups
Kveðskapur -
: Flóttamaðurinn Alfred Kempner -
Pepsi var á Ströndum
Gosdrykkjasaga -
Mótmælum Durban II
Meira -
Ved Helvedes Port
Grein mín í SKALK. Nr.4,1994. -
: Gyðingar á Grænlandi
Fyrri færsla og tenging við grein eftir mig á dönsku um gyðinga á Grænlandi -
Flogið hátt
Grein mín um fyrsta flug flugbels á Íslandi -
Fyrri færsla
Líkþráir Íslendingar -
: Lesið hér (ISBN: 978-965-218-066-7)
Behind the Humanitarian Mask; The Nordic Countries, Israel and the Jews. Edited by Manfred Gerstenfeld. -
Fyrri færsla
Vinir útlendinganna -
Fyrri færsla
Nakinn sannleikur -
Ungr var ek forðum
Færsla um óeirðir og læti í æsku minni -
Fyrri færsla
Þegar Gúttó varð samkunduhús gyðinga -
Fyrri færsla
Vive l'(Gr)islande -
Fyrri Færsla
Nifalt húrra -
Íslenskar frúr í Andvörpum
Um ferðir útrásar-Íslendinga á 16. öld. Lesbók Morgunblaðsins 28.águst 1999. -
Fyrri færsla
Berlínarboogie Laxness -
Fyrri færsla
Pabbi Þórs var myrtur í Auschwitz -
Falskir Íslendingar
Grein um þjóðarstolt -
En dansk krigsforbryder
Grein í Weekendavisen um versta stríðsglæpa- mann Dana, sem dönsk yfirvöld vildu helst gleyma. -
Anti-Semitism in Iceland. Is that possible? -
Iceland, the Jews, and Anti-Semitism, 1625-2004
Grein á ensku um gyðinga á Íslandi -
Ich weiss, was ich zu tun habe
Grein mín um Georg F. Duckwitz, nasistann sem á að hafa verið potturinn og pannan við björgun gyðinga í Danmörku. Í greininni sem birtist í tímaritinu Rambam 15:2006 er gerð grein fyrir fjölmörgu sem danskir sagnfræðingar hafa gleymt að rannsaka. Hlutverk Duckwitz verður nú að endurskoða. -
Grein
The King and the Star í: Denmark and the Holocaust (2003) (ISBN: ISBN 87-989305-1-6) -
: Rescue, Expulsion, and Collaboration: Denmark's Difficulties with its World War II Past
Jewish Political Studies Review 18:3-4 (Fall 2006; Tímarit sem ég hef skrifað töluvert í -
: 20 Begivenheder der skabte Danmark (ISBN: 87-02-0516-7)
Ég er meðhöfundur að einum af köflum bókarinnar. -
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson: Medaljens Bagside - Jødiske flygtningeskæbner i Danmark 1933-1945 (ISBN: 87-91393-60-4 ) Forlaget Vandkunsten 2005. Bók mín um meðferð danskra yfirvalda á flóttafólki á 4. og 5. áratugi 20. aldar.
Meira
Nýjustu færslur
- Forhúðarverndarinn er nú orðinn forseti Norðurlandaráðs
- As Nice as Ninepence
- Looney British Politicians are still at large in the the EU -...
- Nú er það svart aftur, maður!
- Altin Türk tuvalet fircasi
- Hvað ungur nemur, gamall temur
- Brot úr kynningu íslenska síonistasambandsins á Hatara
- Nautheimska
- Nýtt flugfélag - VÖV air
- Katrín give's a kiss!
- Ísland best í heimi hér
- Laxness var líka dónakarl
- Svona er Fjölþreifingaþjóðfélagið
- Nú ætti Imba að vinna vinnuna sína...
- Íslensk píratafrú sýnir alheimsku sína
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.12.): 1
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 142
- Frá upphafi: 1291366
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 100
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
-
Aðalbjörn Leifsson
-
Alexander Kristófer Gústafsson
-
Anna Karlsdóttir
-
Arnar Guðmundsson
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Benjamín Kári Danielsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Böðvarsdóttir
-
Bwahahaha...
-
Einar G. Harðarson
-
Elfar Logi Hannesson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Faktor
- Fornleifafræðingafélag Íslands
-
FORNLEIFUR
-
Friðrik Agnar Ólafsson Schram
-
Gestur Halldórsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
gudni.is
-
Guðjón Baldursson
-
Guðmundur Magnússon
-
Guðmundur Pálsson
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Guðni Karl Harðarson
-
Guðrún Una Jónsdóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gulli litli
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnsteinn Þórisson
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Halldór Jónsson
-
Halldór Sigurðsson
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Sigurðsson
-
Haukur Baukur
-
Heimir Eyvindarson
-
Heimir Tómasson
-
Helena Leifsdóttir
-
Helgi Seljan
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Himmalingur
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
Hvítur á leik
-
Högni Snær Hauksson
-
Hörður Finnbogason
-
Inga Sæland Ástvaldsdóttir
-
Ingi Jensson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Jón Þór Ólafsson
-
K.H.S.
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Kristinn Eysteinsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Leikhópurinn Lotta
-
Linda
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
Mofi
-
Ólafur fannberg
-
Ólafur Jóhannsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur Valgeirsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Pétur Björgvin
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Ragnheiður
-
Ragnhildur Kolka
-
Rauða Ljónið
-
Róbert Björnsson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Rýnir
-
Samstaða þjóðar
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
S. Einar Sigurðsson
-
Sif Gylfadóttir
-
Sigurður Antonsson
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Sigurður Rúnar Sæmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigurður Þór Guðjónsson
-
Sindri Guðjónsson
-
Snorri Bergz
-
Snorri Óskarsson
-
Steingrímur Helgason
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Sveinn Tryggvason
-
Toshiki Toma
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Tryggvi Hjaltason
-
Upprétti Apinn
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Vefritid
-
Ylfa Mist Helgadóttir
-
Þórarinn Sigurðsson
-
Þórður Björn Sigurðsson
-
Þórólfur Ingvarsson
-
Þráinn Jökull Elísson
Eldri færslur
- Nóvember 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007